Um okkur

Við systurnar og vinkonur okkar kynntumst gæðamerkinu Minerva fyrir u.þ.b 20 árum síðan er rekin var verslun við Laugaveg undir því sama nafni. Keyptum okkur ýmsan fatnað frá þeim eins og hlýraboli, langermaboli, Aladinbuxur og fleira sem nota bene eru enn í notkun.

Það var svo árið 2018 ( 20 árum síðar) eftir að hafa saknað verslunarinnar gífurlega ákváðum við að hafa sambandi við þau úti og tryggja okkur umboðið sem gekk eftir. Höfum við rekið netverslun fram til dagsins í dag er við ákváðum að sameinast 7 öðrum verslunum sem reka saman verslunartorgið Múlatorg.
Minerva er þekkt fyrir einstök gæði og þægindi þar sem lífræn bómull er þeirra eðalmerki (þ.e Modal og Tencel).


Einnig bjóðum við uppá vandaðan velúrfatnað fyrir allan aldur.
Fatnaðurinn hentar jú öllum aldri og þreytumst við stöllur seint á að dásema þessa vöru.

Hér ríkir mjög góður andi og er aðaláhersla lögð á að taka vel á móti viðskiptavinum ogkappkosta að bjóða uppá þessa gæðavöru á viðráðanlegu verði.
Hlökkum til að sjá þig,


Systurnar síkátu